Fyrirtækið Landlínur ehf. var stofnað árið 2000. Þjónustan liggur í megin atriðum á þremur sviðum sem eru skipulagsmál, landslagshönnun og landfræðitengd verkefni. Nánari útlistun á verkefnum þeim sem Landlínur sinna má sjá á síðum fyrrgreindra verksviða. Viðskiptavinir eru sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Fyrirtækið þjónustar alla landshluta en staðsetningar vegna eru flest verkefni tengd Vesturlandi. Tveir landslagsarkitektar og landfræðingur starfa hjá Landlínum.