Þegar framkvæmdaáform eru minni háttar og tengjast eingöngu stakri lóð er oft heimilt að útbúa svonefndan afstöðuuppdrátt í stað deiliskipulags. Það er í höndum skipulagsfulltrúa hlutaðeigandi sveitarfélags að tilgreina í hverju tilfelli fyrir sig hvort fullnægjandi sé að leggja fram afstöðuuppdrátt. Algengast er að afstöðuuppdráttur tengist stakri byggingu (t.d. íbúðarhús, frístundahús, bílgeymsla, hesthús, veitumannvirki) sem fyrirhugað er að reisa á svæði þar sem deiliskipulag er ekki fyrir hendi.
Deiliskipulag
Aðalskipulag
Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir sveitarfélag þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun og þróun byggðar í sveitarfélaginu á minnst 12 ára tímabili. Landlínur hafa séð um skipulagsráðgjöf við gerð aðalskipulags fyrir sjö sveitarfélög. Sveitarfélög þessi eru Hvalfjarðarsveit, Kjósarhreppur og Borgarbyggð, auk Hvalfjarðarstrandarhrepps, Leirár- og Melahrepps, Skilmannahrepps, og Innri-Akraneshrepps. Síðast töldu fjögur sveitarfélögin voru sameinuð sem Hvalfjarðarsveit árið 2006.
Deiliskipulag er skipulagsáætlun fyrir tiltekna reiti innan sveitarfélags sem byggð er á aðalskipulagi og kveður nánar á um útfærslu þess. Landlínur hafa unnið á sjötta tug deiliskipulagsáætlana víðsvegar um land en flest liggja deiliskipulagsverkefnin á Vesturlandi. Mest er um að unnið hafi verið deiliskipulag fyrir frístundabyggðasvæði en einnig hafa Landlínur skipulagt íbúðarbyggð, hesthúsabyggð, hafnarsvæði, friðlýst útivistarsvæði, golfvöll, svæði fyrir vatnsaflsvirkjanir og kirkjugarða svo eitthvað sé nefnt.